Í áratug reyndi rannsóknalögreglumaðurinn tilvistarkreppti, Archie Sheridan, að klófesta hið ægifagra morðkvendi, Gretchen Lowell. Að endingu var það þó hún sem náði honum. Gretchen rændi Archie fyrir tveimur árum og pyntaði í tíu daga en af einhverjum ástæðum ákvað hún að sleppa honum í stað þess að drepa hann. Því næst gaf hún sig fram og situr nú af sér lífstíðardóm á bak við lás og slá. En Archie er í annars konar fangelsi. Hann er háður verkjalyfjum og virðist fyrirmunað að snúa aftur til eðlilegs lífs. Sálartjónið eftir dagana tíu virðist varanlegt og fyrrverandi eiginkona hans segir hann gjörbreyttan mann. Archie veit að hún hefur á réttu að standa. Vikulega heimsækir hann Gretchen í fangelsið og segist jafnan vera sá eini sem mögulega getur fengið hana til að greina frá því hvar fjölmörg fórnarlömb hennar eru niðurkomin. Sjálfur veit hann þó mætavel hvað býr að baki: honum er einfaldlega um megn að halda sig fjarri henni.
Þegar annar morðingi tekur að myrða táningsstúlkur í Portland verður Archie að taka sig saman í andlitinu og fara fyrir sínu fólki í lögreglurannsókninni. Ung og metnaðargjörn blaðakona, Susan Ward, ákveður að gera Archie og rannsókninni ítarleg skil og leiðir það til mikils háskaleiks þeirra Archie, Susan, Gretchen og hins nýja morðingja, sem nú þarf að ná. Ef það tekst getur Archie kannski fundið sálarfrið gagnvart Gretchen, í eitt skipti fyrir öll. Hugsýki er einhver athyglisverðasta frumraun í spennusagnaritun síðari ára.
UMSAGNIR
„Gretchen Lowell er einhver mest sannfærandi
raðmorðingi skáldsagnanna síðan Hannibal Lecter.“
Chuck
Palahniuk
„Einhver
frumlegasti spennutryllir síðari ára. Raðmorðingjar
eru ekki allir eins. Þessi er alveg sér á báti.
Þetta gæti vel verið spennutryllir ársins.“
Booklist
(sérstök meðmæli)
„Í
Hugsýki er allur pakkinn: óttalaus og duttlungafull
kvenhetja, tilvistarkreppt lögga og einhver mest
hrollvekjandi raðmorðingi bókmenntasögunnar. Bókin
heldur manni í heljargreipum.“
Tess
Gerritsen
„Tryllandi,
truflandi og tælandi. Hugsýki er líka sigur
mannsandans. Vonaðu bara að Gretchen verði aldrei á
vegi þínum.“
Val
McDermid
„Skáldsaga
Chelsea Cain er í senn frumleg og heillandi. Hvílík
lesning. Hin mjög svo mannlega lögga, Archie
Sheridan, hittir fyrir háskakvendið margbrotna,
Gretchen Lowell. Cain er yndislegur en ógnvekjandi
sögumaður. Hugsýki er algjörlega ógleymanleg.“
Dominick
Dunne
Höfundur: Chelsea Cain
Þýðing: Orri Harðarson
Stærð:
23,6 cm á hæð, 15,5 cm á breidd.
320 blaðsíður
ISBN 978-9979-782-69-8
Verð: 4.480
Tilboðsverð: 2.000
Panta
Höfundurinn Chelsea Cain er fædd árið 1972 og býr í Portland ásamt eiginmanni sínum og dóttur. Hún hefur unnið sem pistlahöfundur hjá New York Times og The Oregonian í mörg ár. Þetta er fyrsta bók hennar um rannsóknalögreglumanninn Archie Sheridan. Bókin hefur verið á metsölulistum í Bandaríkjunum og Bretlandi og hefur bókin nú verið gefin út í meira en 20 löndum og hvarvetna verið mjög vel tekið jafnt af lesendum sem gagnrýnendum. Heimasíða höfundar: www.chelseacain.com
